17.9.2010 | 12:40
Rugl.
|
Dæmd fyrir nafnlaust bréf |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.7.2010 | 15:50
Rangt !
Carreras greindist með hvítblæði 1987 en ekki 1997 þannig að 14 árin ganga heldur ekki upp.
Kynnið ykkur málin áður en þið skrifið fréttirnar!
|
Jose Carreras snýr aftur í La Scala |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.4.2010 | 16:27
Rugl.
Við eigum tvö gömul úrelt varðskip og nú á að senda annað þeirra til Afríku næstu mánuðina.
Nr. 1 .Við höfum ekki nú skip til að gæta landhelgi okkar og öryggis sjómanna okkar.
Nr. 2. Landhelgisgæslan hefur varla fjárráð til að halda uppi lögbundnu eftirliti við Íslands.
Nr. 3. Nýja varðskipið okkar liggur stórskemmt í Chile.
Höfum við virkilega siðferðislega og fjárhagslega efni á að senda skipið til Afríku. Mér er alveg sama
þó að ferðin sé kostuð af öðrum við getum ekki verið með eitt varðskip á Íslandi sem bilar oft.
|
Varðskip flytur dót fyrir skóla ABC |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.2.2010 | 14:16
Hættum viðskiptum við Arionbanka.
Í ljósi þess að stjórnendur Arionbanka hafa fært Ólafi Ólafssyni Samskip aftur og ætla að hleypa Jóni Ásgeiri siðspillta minnislausa stórþjófi aftur af stað með Haga þá eigum við að hætta öllum viðskiptum við þennan helvítis banka sem er að koma þúsundum fjölskyldna á vonarvöl.
Er aumingjaskapur Íslendinga takmarkalaus ? Hvenær ætlar þjóðin að rísa upp á móti þessu.
Það dugir ekkert helv. jarm á Austurvelli Kl. 15.00 alla laugardaga. Nú þarf meira til !!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2010 | 14:00
G-bletturinn !
Nú hafa vísindamenn komist að því að g-bletturinn er ekki til.
Það hefði verið gott að vita þetta fyrr. Allur sá tími og fyrirhöfn sem hefur farið í að.......................
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.12.2009 | 13:42
Icesave andstæðingar fræðið mig á einu !
Í allri þeirri umræðu sem hefur átt sér stað um þessi lög er fjallað um hversu skelfilegar afleiðingar það hefði fyrir þjóðina ef að Óli skrifar undir. EN HVAÐA AFLEIÐINGAR HEFUR ÞAÐ FYRIR OKKUR EF HANN SKRIFAR EKKI UNDIR.
Ég hef séð litla umfjöllun um hvað gerist ef hann skrifar ekki undir. Mér skilst að það gæti haft mjög slæmar afleiðingar fyrir okkur.
Er einhver þarna úti af ykkur Icesaveandstæðingum sem getur frætt mig á því hverjar verða afleiðingarnar fyrir þjóðina ef Óli skrifar ekki undir.
Og gleymum ekki einu: Íslendingar eru ekki einir í heiminum og hvorki gáfaðri eða fallegri en aðrar þjóðir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2009 | 13:50
Reykjavíkurborg og ISS sameinast um nútíma þrælahald í skjóli óttans !
Fyrir nokkru síðan sagði Reykjavíkurborg upp samningi við Ræstingaþjónustuna ehf. sem séð hefur um ræstingar í leikskólum borgarinnar. Láglaunafyrirtækið ISS fékk verkið í staðinn.
Fyrrverandi starfsmenn Ræstingaþjónustunnar ehf. og aðrir hafa því leitað til ISS í þeirri von um að geta haldið störfum sínum áfram eftir áramótin þegar ISS tekur ræstingarnar yfir. Það sem að ISS er að bjóða fólki, í skjóli Reykjavíkurborgar er:
Haltu starfi þínu en þú verður að leysa það af hendi á helmingi skemmri tíma en áður, það verður líka bætt við þig verkefnum. Að endingu þarf ekki að taka það fram að ISS býður líka upp á launalækkun fyrir sömu vinnu. Fólk sem starfar við ræstingar er það fólk sem að síst mætti við launalækkun.
Svona kemur níðingsháttur margra atvinnurekenda og hins opinbera fram þegar að margir óttast um vinnu sína. Þá er ótti fólks notaður til að "svínbeygja" það og niðurlægja.
Reykjavíkurborg og ISS hafið skömm fyrir !!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2009 | 13:37
?
|
Vetrarfærð í Bandaríkjunum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2009 | 11:57
BÚSÁHÖLDIN TIL BESSASTAÐA.
Íslendingar eru um margt furðulegir. Nú í dag eru 24.000 manns búnir að skrifa undir áskorun til Óla um að skrifa ekki undir Icesave. Samt mættu ekki nema um 1.000 manns á boðanann mótmælafund á Austurvelli í gær. Hvar er samstaðan kæru landir. Það nægir ekki að sitja á rassgatinu heima og og samþykkja einhver mótmæli á netinu. Það nægir ekki kæru landar. Við eigum ekki að sýna Óla neina linkind í þessu máli. Það á að beita búsáhöldunum á þennan mann eiginhagsmuna, smjaðurs og hræsni.
Við getum ekkert treyst á þennann "Öryggisventil" eins og hann kallar sjálfan sig.
Setjumst um Bessastaði og sjáum til þess að hann skrifi ekki undir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.11.2009 | 17:00
Góður leikari fallinn frá.
Edward Woodward var mjög geðþekkur leikari og þættir The Equalizer voru með vandaðri spennuþéttum sem að frá kananum hafa komið. Þar lék hann einkaspæjara sem kominn var af léttasta skeiði og var hann oftast að aðstoða fólk sem mátti sín lítils og oftast nægði honum þakklæti skjólstæðings síns frekar en peningar.
Með útsjónarsemi og yfirvegun leysti hann hvert málið á fætur öðru. Ekki með ofbeldi og blóðbaði. Mjög góðir þættir os svolítið "öðruvísi.
|
Edward Woodward látinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)



vulkan
hlf